Ég hef verið einn af þeim sem hafa fylgst nokkuð vel með ferli ensku skáldkonunnar Rachel Cusk. Ég hef lesið síðustu bækurnar hennar og verið nokkuð ánægður með þær. Rachel hefur verið mjög rísandi stjarna á himni bókmenntanna síðustu ár (sérstaklega eftir útkomu sjálfsögulega þríleiksins Outline, Kutos og Transit) og er hún ein af þeim rithöfundum sem eru eftirsóttir gestir á bókmenntahátíðum um allan heim. Ein bók eftir höfundinn hefur komið út á íslensku hjá bókaforlaginu Benedikt; skáldsagan Hitt húsið, sem mér finnst besta bók höfundar.
Í síðustu viku kom út ný skáldsaga eftir rithöfundinn á ensku sem heitir Parade og fjallar hún, eins og fleiri af bókum Rachel Cusk, um listamenn (málara og rithöfunda) og baráttu þeirra við að skilja líf sitt og annarra og sjá tilganginn í listsköpun sinni. Bækur skáldkonunnar hafa hingað til nánast allar fengið mikið lof lesenda og gagnrýnenda og hefur hún verið mjög í uppáhaldi þeirra sem fjalla um bókmenntir. En nú kveður við nýjan tón. Bæði gagnrýnendur stórblaða á borð við New York Times og The Guardian rakka nýju bók Rachel Cusk niður í svaðið; „tilgerðarlegt blaður um listina“. Gagnrýnandi NYT gengur svo langt að segja að aðdáendur Rachel Cusk skuli bara láta eins og þessi bók sé ekki til og hafi aldrei komið út.
Ætli Rachel Cusk sé ekki miður sín, hugsaði ég í morgun þegar ég las New York Times gagnrýnina. Það hlýtur að vera svolítið vont að fá svona þunga sleggju í hausinn frá jafn áhrifamiklum miðli og NYT.
Nú þegar ég er einn hérna í íslensku sveitinni nota ég tímann í það sem fæstum ætti að þykja skynsamlegt eða viturlegt. Ég ætti eiginlega að bjóða Rachel að koma og aðstoða mig. Kannski mundi hún skilja listina og tilgang lífsins. En um þessar mundir finn ég enga sérstakan tilgang í að skrifa bækur og því nota ég tímann í að bera nokkuð þunga steina langar leiðir til að leggja þá í línu. Myndar steinaröðin spíral hérna niður við bæjarlækinn vestan við húsið. Nú er spírallinn minn orðinn 6 metrar í þvermál en ætlunin er að búa til steinspíral sem er jafnbreiður og fótboltavöllur; 68 metrar. Þetta er langtímaverkefni sem veitir mér undarlega mikla gleði og gæti örugglega orðið Rachel Cusk huggun ef hún tæki þátt í steinaburðinum með mér.
Spírall 2024. 6 metrar í þvermál -> verður 68 metrar í þvermál.
ps. Það þóttu vond tíðindi á bandaríska bókamarkaðinum að Cosco, hin stóra verslunarkeðja, tilkynnti á dögunum að bækur yrðu ekki á boðstólum alla mánuði ársins eins og hingað til. Verður einungis hægt að kaupa bækur í Costco frá september til desemberloka. Þetta er töluvert áfall fyrir bandaríska bókaútgefendur og mætti líkja þessari nýju þróun við að Bónus hætti að selja bækur á Íslandi.