Það eru nokkur merki þess að hinn alþjóðlegi bókabransi neyðist til að breyta nokkuð um stefnu ef þessi viðskiptagrein eigi að lifa af. Ár eftir ár hefur hagur bókaútgáfunnar þrengst, sala prentaðra bóka minnkar og tekjur rýrna þrátt fyrir að kostnaður við útgáfu bóka aukist. Lesendur leita nú í auknum mæli til streymisveitna til að fá sitt bókafix en greiðslur streymisveitna fyrir „sölu“ á hverri bók er aðeins brotabrot af því sem sala á prentaðri bók gefur í búðarkassa bókaútgefenda og höfunda. Niðurstaðan er að bókaútgáfurnar grípa til aðhaldsaðgerða, fækka starfsfólki, fækka útgefnum verkum eða í þrem orðum sagt: draga saman seglin. En það eru ekki allir tilbúnir til að leggja ára í bát og fljóta rólega í átt að feigðarósi.
Ný frétt frá Svíþjóð segir frá því að glæpasagnahöfundurinn Camilla Läckberg hafi keypt höfundarréttinn á frægum, sænskum barnabókaflokki um köttinn Palle Haleløs (Palla skottlausa) sem fyrst var gefin út í Svíþjóð 1937. Nokkrar bækur komu út í þessum bókaflokki allt til ársins 1972 og voru sumar þeirra meira að segja þýddar á önnur tungumál.
Sænska glæpadrottningin, Camilla, sem er þekkt fyrir dirfsku og drifkraft, hefur ákveðið að láta ekki niðursveiflu í sölu bóka hennar setja hana út af laginu. Hefur hún nú kynnt margar stórhuga hugmyndir með nýfenginn höfundarrétt. „Konseptið“, eins og bókaflokkurinn um Palle er kallaður á viðskiptamáli Camillu, verður þróað á margvíslegan hátt. Nýjar bækur með kettinum Palle verða skrifaðar í samvinnu við bókaforlagið Bonniers (Camilla eða starfsmenn hennar semja nýjar sögur), nýir tölvuleikir verða framleiddir, ný borðspil kynnt, ný kvikmynd og sjónvarpsþættir eru í þróun og þar að auki hefur Camilla gert samning við fyrirtækið Parks and Resorts um að hanna skemmtigarð í anda Disney-garðsins eða Lego-lands, þar sem Palle og aðrar persónur í bókunum munu skemmta börnum og hrella foreldar þeirra.
Hin nýjungin sem kynnt var á dögunum í Danmörku er líka stórbrotin. Forlagið Politiken réð tvo þekkta, danska höfunda til að þróa bókaflokk sem byggir á gamalli sögu um lífið í Egeskov Slot á Fjóni. Fyrsta bókin í bókaflokknum kom út í maí en hugmyndin hjá forlaginu er ekki bara að framleiða bækur heldur er jafnframt ætlunin að þróa sjónvarpsseríu með frægum leikurum og gera Egeskov að jafn þekktu hugtaki á alþjóðavettvangi og Downton Abbey (bresk þáttaröð).
Eins og margt í nútímanum virðist þróunin í bókaútgáfu stefna í meiri markaðshyggju, eða einskonar iðnvæðingu. Sæi ég íslenskar bókaútgáfur fyrir mér setja á flot jafn stórhuga verkefni og Camilla Läckberg og Politikens forlag hafa nú tekið sér fyrir hendur? Sæi ég bókaforlagið Bjart standa á bak við eitthvað sambærilegt? Forlagið? Bókaforlagið Benedikt? Angústúru? Uglu? Ég sæi það kannski ekki fyrir mér, eða það kæmi mér nokkuð á óvart, en það er þó aldrei að vita. Bókaforlög geta leynt á sér.