Ég veit ekki hvort það þyki sæta tíðindum hér á Íslandi að sænska rithöfundinum Christoffer Carlsson hlotnaðist glæpasagnaverðlaunin Glerlykillinn fyrir bók sína Levanda och döda. Tilkynnt var um úthlutun verðlaunanna í vikunni og var því fagnað af Christoffer og forlagi hans. Bjartur (bókaforlagið) hefur gefið út eina bók Christoffers, frumraunina Bölvunin, sem Páll Valsson þýddi. Levande och döda er önnur bók höfundar. Glerlykillinn eru norræn glæpasagnaverðlaun sem veitt eru einu sinni á ári og er ein bók frá hverju Norðurlandanna tilnefnd. Bók Skúla Sigurðssonar, Stóri bróðir, var tilnefnd fyrir Íslands hönd. Yfirleitt eru það sænskir höfundar sem vinna þessi verðlaun (sex Svíar síðustu átta ár) en Arnaldur Indriðason hefur þó hlotið verðlaunin tvisvar sinnum, árin 2002 og 2003.
Þótt mér finnist sigur Christoffers Carlsson merkilegur og gleðilegur þykir þó sennilega ekki frásagnarvert á Íslandi að höfundurinn hafi verið verðlaunaður fyrir glæpasögu sína. Íslenska forlag Christoffers hefur ekki þótt ástæða til að segja frá þessum heiðri höfundar síns. En ég er í skýjunum (eða þannig) því ég hef lesið báðar bækur rithöfundarins og í mínum huga er hann óvenjulegur, áhugaverður og sérlega ritfær. Þess vegna vona ég að Bjartur sjái sér fært að gefa út verðlaunabókina því það mundi lífga glæpabókaútgáfu og vera fengur á markaði glæpasagna á íslensku.
Um leið og Christoffer skálaði í kampavíni við vini sína og forleggjara var annar handhafi þessara verðlauna, Håkan Nesser, (hann hlaut Glerlykilinn árið 2000) dæmdur í sænska hæstaréttinum í 18 mánaða fangelsi fyrir skattsvik. Var hann ákærður fyrir að hafa skotið 15 sænskum milljónum undan skattheimtumönnum. Hann hafði áður verið náðaður fyrir þessar sakir af héraðsdómi. Upphaf ákæru skattayfirvalda á rætur sínar að rekja til upplýsinga sem láku til sænska skattsins með hinum svokölluðu Panamaskjölum. Håkan er einn alfremsti glæpasagnahöfundur Norðurlanda og sagði í viðtali við sænsku pressuna eftir að dómurinn féll að hann væri gersamlega „búinn á því. Átján mánuðir í fangelsi er mjög langur tími. Og þetta eyðileggur líf mitt. Þetta er óréttlátur dómur. Endurskoðandi minn hefur sagt að þetta sé hans yfirsjón og tekið á sig sökina en það er ég sem er dæmdur.“