Ég ætlaði að hlusta á útvarpsþáttinn Bara bækur á morgunhlaupinu. Af einhverjum ástæðum var laugardagsþátturinn enn ekki kominn inn á hlaðvarp útvarpsins þegar ég hafði reimað á mig hlaupaskóna. Þess vegna sneri ég mér þess í stað að menningarþættinum Lestinni. Ekki veit ég hvort þetta var nýjasti Lestar-þátturinn eða bara einhver eldri útsending valin af tilviljun en ég viðurkenni það hér og nú að ég gat einungis hlustað í tíu mínútur eða svo. Þegar þau sem töluðu saman í þættinum sögðu í þriðja sinn: „…hvernig segir maður það aftur á íslensku …“ gat ég ekki meira og slökkti. Afsakið viðkvæmnina.
Afsakið viðkvæmnina
Les þessa pistla reglulega og finnst þeir góðir. Afhverju er ég svo sammála þessum síðasta?
Kæri lesandi. Þakka þér fyrir athugasemdina og jákvæðnina. Ja, af hverju ertu sammála þessum síðasta? Ég held að við séum ekki ein(ir) um að vera á sama máli um þetta efni 😉