ps. Ritnefnd getur ekki látið hjá líða að minnast á að í gær vann Donald Trump forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Það er ein ósk sem fylgjendur Donalds vona að rætist: Að maður gefist upp gagnvart þessum yfirgangi, þessari óhefluðu ruddamennsku og öllu því ömurlega banalíteti sem Donald stendur fyrir. En það skal maður ekki gera. Maður má ekki gefast upp gagnvart yfirgangi Donalds og félögum hans. Auðvitað getur maður ekki bjargað öllu því sem hann á eftir að ryðja niður en maður getur staðið vörð og staðið gegn honum. Í dag hefur maður þörf fyrir að syrgja, eða öskra eða bara taka frí og tefla skák, en hvað sem maður tekur sér fyrir hendur í dag er mikilvægt  – í alvöru mikilvægt – að taka höndum saman um þau góðu gildi sem maður telur gagnist heiminum – veröldinni allri – og láta ekki hugmyndafræði Donalds taka yfir allt. Kaktusinn heldur áfram að skrifa um bækur og bókmenntir 😉