Í dag ætlaði Kaktusinn að skrifa um forlagið Lind & co sem starfar á Íslandi í hálfgerðum kyrrþey en ekkert verður úr því í dag. Það er bara eins og allar hinu slæmu fréttir hrannist upp eftir að sá-sem- ekki-má-nefna hefur enn á ný náð völdum í heiminum. Kaktusinn fletti The Guardian í gær og þetta blasti við á forsíðu:
„Ísraelsmenn gera nýja árás á Beirut,“ stóð efst og fréttinni fylgdu myndir af húsarústum, steypubrotum og blokk í björtu báli. „Ríkisstjórn Olaf Scholz rekur fjármálaráðherran. Stjórnarkreppa í augsýn,“ var næsta frétt. „Óttast er að 2 milljónir íbúa Myanmar komi til með að svelta … algjört efnahagslegt hrun.“ „Boðað viðskiptastríð T… (þess-sem-ekki-má-nefna) gæti valdið algjörri kreppu í Evrópu.“ „Þetta ár (2024) verður það heitasta í sögunni …“ „Palestínumenn fá ekki að snúa aftur til síns heima í norður-Gaza, segir IDF.“ Og svo mitt í öllum þessum ósköpum reynir The Guardian að koma með jákvæða og uppbyggilega frétt. „Ef þú hreyfir þig 5 mínútum meira dag hvern gæti blóðþrýstingurinn lækkað.“ Já, ef það er eitthvað sem Kaktusinn dreymir um núna þá er það lægri blóðþrýstingur … eða nei.
Á morgun skrifar Kaktusinn um Lind & co og það er svolítið athyglisverð lesning. Kannski eitthvað til að læra af fyrir íslensk útgáfufyrirtæki.