Gjörvöll ritnefndin á afmæli í dag (til hamingju gjörvöll ritnefnd) og í tilefni dagsins verður sagt frá nýja Booker-verðlaunahafanum Samantha Harvay sem tók við Bookernum í vikunni fyrir bók sína Orbital. Bókin þykir bæði fallega skrifuð og áhrifamikil.   Einn dómnefndarmanna lét þau orð falla eftir að dagskránni var lokið að Orbital væri einmitt bókin sem við þörfnumst nú.“

Samantha steig á svið til að taka við verðlaununum og hóf ræðu sína á að tilkynna áhorfendum að ræðan hennar væri ónýt. „Okkur hefur verið sagt að við megum ekki nota blótsyrði í ræðunum okkar. Þar fór ræða mín! Það var aðeins eitt blótsyrði. 150 sinnum,“ sagði hún.

Skáldsagan segir frá degi í lífi  sex geimfara sem koma frá Japan, Rússlandi, Bandaríkjunum, Bretlandi og Ítalíu á ferðum sínum um sporbaug jarðar og horfa á jörðina frá Alþjóðlegu geimstöðinni og velta fyrir sér framtíð hennar og möguleikum á að lifa af. Á þessum 24 tímum (sögutímanum) verða þau vitni að sólin rís og sest 16 sinnum. Það mun víst vera ansi flott sýn.

Þrátt fyrir að vera hátt yfir jörðinni  finna þau fyrir tilfinningalegu aðdráttarafli jarðarinnar. Einn geimfaranna  fær þær fréttir að móðir hans sé látin og íhugar hvernig það verður að snúa aftur. Þau sjá fellibyl nálgast og velta fyrir sér hvort einhverjir þeirra nánustu séu í hættu. Brotthætt eðli mannlífsins; sorg og þrá verður miðpunktur samtala þeirra og drauma.

Í þakkarræðu sinni helgaði Harvey verðlaunin „öllum sem tala með, en ekki gegn jörðinni, reisn annarra manna, öðru lífi, og öllum þeim sem tala fyrir, hvetja til og vinna að friði.“

Harvey sagði að hún hafi næstum hætt við að skrifa Orbital því hún hugsaði: „Hvers vegna í ósköpunum myndi nokkur vilja heyra frá konu við skrifborðið sitt í Wiltshire skrifa um geiminn, ímynda sér hvernig það er að vera í geimnum, þegar fólk hefur í raun verið þar? Ég missti kjarkinn og hugsaði, ég hef ekki vald til að skrifa þessa bók.“ Hún sagði að Tim Peake, geimfari, hafi lesið bókina og verið „mjög vingjarnlegur og hrósað bókinni.“ Hann „vildi vita hvaðan ég hefði fengið upplýsingarnar mínar,“ sagði hún.

Orbital er aðeins 136 blaðsíður að lengd og er því næststysta skáldsagan til að vinna verðlaunin. Þetta er líka í fyrsta sinn sem skáldsaga sem gerist í geimnum hlýtur verðlaunin.

Þetta er fimmta skáldaga Harvey og hlýtur hún verðlaunin 15 árum eftir að frumraun hennar, The Wilderness, kom út. Verk hennar hafa ekki verið þýdd á íslensku.

„Með ljóðrænum og beittum stíl gerir Harvey heiminn okkar framandi og nýjan fyrir okkur,“ sagði Edmund de Waal, formaður dómnefndar.

Með verðlaununum fylgja 50.000 bresk pund (tæpar 9 milljónir isk)

Á meðal fyrri sigurvegara eru Margaret Atwood, Ian McEwan, Julian Barnes og Kazuo Ishiguro.

Frá því bókin kom út í nóvember 2023 hefur hún selst í 29.000 eintökum. Það er meira en samanlagt sölumagn síðustu þriggja Booker-verðlaunahafa.

Nú má Harvey búast við alþjóðlegum áhuga á verkum sínum, aukningu í bóksölu og þýðingu á mörg tungumál. Ekki er vitað hvort íslenskir útgefendur hafa lýst yfir áhuga sínum hjá umboðsmanninum Anna Webber sem starfar hjá umboðsskrifstofunni AM Heath og sér um sölu þýðingarréttarins fyrir Samantha Harvay.