Ég bý mig af kappi undir jólabókaflóðið. Ferðin til Íslands er nú á næsta leyti. Að vísu sendi flugfélagið mér viðvörun í gær að vel gæti svo farið að flugferðinni þann dag sem ég á pantað flug gæti verið aflýst með stuttum fyrirvara. Undirbúningur minn heldur þrátt fyrir allt áfram. Eiginlega mætti fremur halda að ég byggi mig undir að keppa í einhverri íþróttagrein á Ólympíuleikum en í keppni að gefa út bók á íslenskum jólabókamarkaði. Öll mín hlaup, hopp og langir tennisleikir. Þetta minnir mig á þegar Kasper Hvidt, gamli handboltamarkvörður Dana, byrjaði að þjálfa lið tölvuleikjadrengja. (Það er íþróttagrein að spila tölvuleiki). Hann tók fjóra tölvuleikjahjassa sem höfðu lifað árum saman af gosdrykkjum og kartöfluflögum og gerði úr þeim járnmenn eftir svakalegt æfingaprógramm og hollt mataræði. Og nú er liðið hans heimsmeistaralið í tölvuleikjum.

Ég las frétt í útlendu dagblaði í gær sem sagði frá vanda barnabókahöfundarins JK Rowling. Hún náði aldrei að verða Íslandsvinur eins og Kevin Costner þótt hún hafi komið í heimsókn til Íslands í sumar, farið á söfn og keypt íslenskar ullarvörur. Nú hefur rithöfundurinn sent frá sér nýja bók. Í þetta skipti skrifar Rowling undir höfundarnafninu Robert Galbraith. Nýja bókin sem er glæpasaga og heitir Troubled Blood seldist í 65.000 eintökum fyrsta útgáfudaginn í Englandi þrátt fyrir nokkur mótmæli gagnvart höfundinum og bókinni fyrir að skapa karlamanns-raðmorðingja sem klæðist kvenmannsfötum í sögunni. (Það mega bara sumir.)

Enska dagblaðið Telegraph skrifaði ritdóm um bókina daginn sem hún kom út og kallaði einn af hinum grunuðu „kynskipti raðmorðingja“ og spurði hvað þeir sem gagnrýnt hefðu Rowling, vegna skoðana hennar í trans-málum, þætti um boðskap sögunnar: að aldrei skyldi maður treysta karlmanni í kvenmannsfötum. Þetta virðist hafa kynt að nýju undir mótmælum gagnvart Rowling og ásökunum um að hún sé haldin transfóbíu. Hafa mótmælendur hvatt til að bækur höfundarins verði brenndar, bókabrennur hafa verið haldnar og hafa nokkrar bókabúðir bæði í Englandi og Ástralíu neitað að selja bækur höfundarins. Nýtt æði hefur brotist út hjá TikTok þar sem fyrrum Harry Potter-aðdáendur eru sýndir brenna Potter-bókasafnið sitt. Þrátt fyrir neikvæð viðbrögð þessa hóps (sem ég held að er fámennur en fremur hávær) hefur bók gefin út undir höfundarnafninu Robert Galbraith aldrei fyrr selst svo vel á fyrsta útgáfudegi.