Stutt færsla í dag. Við þurfum að rjúka yfir til Árósa í dag. Það eru veikindi í fjölskyldu Sus sem kalla okkur af stað. Læt mér því nægja að birta mynd af Magga-slóðum undir Eyjafjöllum sem ég fékk senda í gær.
Annars var ég að hugsa um það í gær hvað nú er mikil kyrrð yfir tölvupóstinum mínum miðað við hvernig það var fyrir fjórum vikum þegar ég var enn að vinna sem forleggjari. Ég var vanur að fá meira en 100 tölvupóstsendingar á dag. Ég er búinn að leggja niður gamla netfagið mitt, kominn með nýtt og nú eru þær um það bil 10 á dag, tölvupóstsendingarnar, ef ég er heppinn. Kannski er fækkunin, ef ég hugsa mig betur um, ekkert svo óheppileg. Maður velur sína gleði