Jólabókaflóðið er hafið. Og bækurnar streyma til landsins, ekki bara sjóveginn frá hinum útlendu prentsmiðjum, heldur koma nýjustu bækurnar loftveginn. Heill floti af Boeing vélum, drekkhlaðinn íslenskum bókum lenti á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Ritnefndin var á ferð um Reykjavík í gær og náði að næla sér í, – nánast beint úr fragtklefa Boeing-flugvélar – bók Dags Hjartarsonar, Sporðdrekar. Skáldsaga Dags er ein þeirra bóka sem ritnefndin hlakkar mest til að lesa af öllum þeim nýju skáldverkum sem nú berast með flóðbylgjunni.
Í síðustu viku opinberaði bókaforlagið Benedikt ný hlaðavörp (fleirtala). (Útúrdúr: getur maður sagt reynslur? eins og ritnefnd las ítrekað í nýrri bók sem kom út á dögunum. Er reynsla ekki fleirtöluorð?)) Í hlaðvörpunum spjalla höfundar forlagsins um verk sín og lesa upp úr hinum nýútgefnu bókum. Ritnefndin hlustaði á Dag Hjartarson tala við Einar Kára frá Benedikt-forlaginu um bókina Sporðdreka og var samtal þeirra svo áhugavert að ritnefndin gerði út sérstakan leiðangur til að krækja í Sporðdrekana. Smelli maður hér lendir maður beint inn á þessum fínu orðaskiptum. Kaktusinn gefur sín bestu meðmæli.