Í vikunni kláraði gjörvöll ritnefnd Kaktussins þriðja bindið í hinum svakalega bókaflokki Karl Ove Knausgård sem hefur verið kallaður Morgunstjörnu-bókaflokkurinn. Bækurnar eru nú orðnar fimm

  1. Morgunstjarnan
  2. Úlfarnir frá Eilífðarskóginum
  3. Þriðja ríkið
  4. Næturskólinn
  5. Arnardalurinn

Að komast í gegnum fyrstu þrjú bindin þykir sumum nokkuð afrek því þetta eru miklu meira en 2000 blaðsíður af miklu ritmáli. En um leið og lestri á þeim þremur bindum sem til eru á dönsku var lokið gat ritnefnd ómögulega beðið eftir að læsa tönnunum í fjórða bindið Næturskólann sem kom út á dönsku fyrr í vikunni. Dómarnir hafa verið rosalegir. Í Danmörku er nefnilega enn menningarumræða og dagblöðin eru enn með nokkuð góðar bókmenntasíður

  1. JyllandsPosten: ❤️❤️❤️❤️❤️❤️
  2. Kristeligt Dagblad: ❤️❤️❤️❤️❤️❤️
  3. Berlinkse Tidende: ❤️❤️❤️❤️❤️❤️
  4. Politiken: ❤️❤️❤️❤️❤️
  5. Information: „Svakaleg skáldsaga“
  6. Weekendavisen: „Besta bók Knausgård.“

Það er ómögulegt að segja á hvaða leið Knausgård er með þessum metnaðarfulla bókaflokki en allt verður smám saman meira óþægilegt og djöfullegt en á besta hugsanlega máta.  Karl Ove er þeirri gáfu gæddur að hann getur skrifað um hvað sem er og alltaf tekst honum að láta texta sinn virka djúphugsaðan og áhugaverðan. Bækur hans eru sjálf-flettarar af bestu gerð. Maður gleypir hverja síðuna á fætur annarri án þess að skilja hvað rekur mann áfram. Í öllum hversdags-banalitetunum brýst eitthvað snilldarlegt í gegn.

ps. Ritnefndin var rétt í þessu að lesa bókablað Heimildarinnar með drottningarviðtali við Hallgrím Helgason. Réttast að segja ekki neitt.