Rétt í þessu blikkaði HOT-LINE skynjarinn hér á ritstjórnarskrifstofu Kaktussins. Eins og Kaktusinn hefur lofað birtast þau tíðindi sem berast eftir HOT-LINE–línunni án ritstjórnar, án tafar og í fullum trúnaði við the whistleblowereða lanceur d’alerte eins og maður segir á frönsku.
Kaupmannahöfn,
9. október 2024, 13:49 GMT+1
Það var íslenskur rithöfundur á meðal gesta í hátíðarkvöldverði danska konungsins í gærkveldi! Kristín Marja Baldursdóttir var í hinum fríða flokki Íslands sem annars virðist að mestu skipaður fólki úr viðskiptalífinu, stjórnsýslu- og embættismannakerfinu. (Þess má geta að ræða forseta Íslands féll í kramið hjá álitsgjöfunum fimm sem lýstu athöfninni í settinu hjá DR í gærkvöldi. Ræða konungs fær hinsvegar vonda einkunn í dönsku pressunni í dag.) Gestalistann í gallateffell konungs má sjá hér.
