Norski rithöfundurinn Jon Fosse (64) var rétt í þessu að hreppa Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Fimm bækur hafa komið út eftir höfundinn á íslensku í þýðingu Hjalta Rögnvaldssonar: Morgunn og kvöld,  Þetta er Alla, og þríleikurinn: Andvaka, Draumar Ólafs og Kvöldsyfja. Bækurnar fimm koma út hjá bókaforlaginu Dimmu. Í ár bættist svo enn ein þýðing í safnið. Bókaforlagið Espólín gaf út leikrit – eintal í einum þætti:  Þannig var það. Kristrún Guðmundsdóttir íslenskaði.