Franskir unglingar fá, skv. nýjum lögum, 50.000 kr í vasann á 18 ára afmælisdegi sínum frá hinu franska ríki. Ætlunin er að þeir noti peningana til að kaupa bækur, fara í leikhús, skoða myndlistarsýningar, sækja kvikmyndahús og annað sem skilgreint er sem menningarneysla. Þetta eru að vísu ekki beinharðir peningar sem er deilt út heldur app sem gefur unga fólkinu, þvert á stéttarstöðu og búsetu, aðgang að menningunni. Þetta er stórkostlega metnaðarfullt prógramm sem Macron hefur sjósett til að efla franskt menningarlíf og gera listina aðgengilegri fyrir alla. Á hverju ári setja Frakkar 40 milljarða í þessa menningar áætlun. (Til samanburðar notaði forsetaframbjóðandinn Kamala Harris 250 milljarða í 15 vikna  kosningabaráttu sína.)

Að mörgu leyti hefur menningaráætlun Macrons heppnast en þó eru háværar gagnrýnisraddir. Í ljós kemur að það eru fyrst og fremst  ungmenni frá efnameiri fjölskyldum í stórborgunum sem nota appið. 24 milljónir hafa þegar nýtt sér menningar-appið. Vandinn er líka sá að ungmennin nota appið ekki til að fara í leikhús, eða á myndlistarsýningar heldur nota 70% peningana til að bækur – og helmingur þeirra kaupir svokallaðar manga-bækur og aðrar teiknimyndabækur – aðeins 4% nota appið á leikhús eða tónleika. Af þessum sökum er appið kallað manga-appið.

Hægrisinnaðir stjórnmálamenn hafa gagnrýnt þessa aðgerð mjög og benda á að unglingarnir noti appið til að kaupa vörur sem auðvelt er að selja, eins og t.d. manga-bækur, og nýta síðan peningana á hamborgarastöðum McDonalds. „Við vitum að ungt fólk les minna og minna, það sýna rannsóknir. Þess vegna fer manni að gruna að bækurnar, sem eru léttseljanlegar, séu notaðar sem skiptimynt í eitthvað annað sem ekki er menningartengt eins og til dæmis hamborgarar frá amerískri skyndibitakeðju,“ sagði einn af hinum hægrisinnuðu gagnrýnendum menningar-appsins.

ps. Til að gleðja alla lesendur Kaktussins tilkynnist hér með að Natskole, Karls Ove Knausgård er kominn í lestur hjá ritnefnd og þvílík sæla sem lesturinn er..