Einu sinni fengu íslenskir lukkuriddarar þá góðu hugmynd að flytja inn sígarettur frá Rúmeníu eða einhverju austantjaldsríki. Þetta vor hræbillegar sígarettur og allir austantjaldsmenn reyktu þennan fjanda.  Því skyldu íslendingar ekki líka vilja reykja þessar sígarettur. Þær voru miklu ódýrari en aðrar sígarettur á boðstólum hér á landi. Viðskiptaævintýrið með sígaretturnar endaði ekki vel. Satt að segja illa.

Ekki fyrir löngu var stofnað nýtt forlag í Noregi, Hino forlag. Eigendur forlagsins höfðu komið auga á japanska glæpasagnahöfundinn Keigo Higahino í ferðum sínum um Tokyo og tóku eftir að bækur hans voru alls staðar í forgrunni bókabúðanna. Alls staðar voru risastórar stæður af bókum höfundarins og þær röðuðu sér númer 1 & 2 & 3 á öllum metsölulistum landsins. Þegar ferðalangarnir fóru að kynna sér höfundinn betur kom í ljós að hann er sá japanski höfundur sem selur langflestar bækur í landinu og hann hirðir þar að auki flest verðlaun sem veitt er fyrir glæpasagnaskrif á japönsku.

Keigo Higashino

Einnig kom í ljós að Keigo Higashino (ein bók hefur komið út á íslensku Hinn grunaði herra X) er gífurlega afkastamikill. Hann gaf út sína fyrstu bók árið 1985 en síðan hefur hann skrifað og gefið út meira en eitt hundrað bækur – langflestar í glæpasagnadeildinni. Þar að auki hefur hann selt meira en 100 milljónir bóka í Japan (auk þess hefur hann selt 70 milljónir eintaka utan Japans).

Það virtist liggja í augum upp fyrir þessa ferðalanga að það gæti ekki klikkað að gefa út slíkan stórhöfund í Noregi. Milljónirnar mundu streyma inn. Strax við komuna til Noregs ákváðu þeir að tryggja sér útgáfuréttinn á Keigo, stofna forlag (Hino forlag var nafnið sem þeir völdu), láta þýða bækur hans í einum grænum hvelli og byrja svo bara að selja. Í bjartsýni sinni reiknuðu þeir út að ef miðað væri við höfðatölu Japans og Noregs ætti hið nýstofnaða forlag að selja um það bil 100.000 eintök af glæpasögunni Hinn grunaði herra X sem var fyrsta útgáfubók Hino forlags. Þeim þótti þrátt fyrir allt rétt að dempa  söluspá sína en gerðu ráð fyrir að í versta falli mundi forlagið selja 15.000 eintök. (Hino hafði heyrt að Hinn grunaði herra X hefði selst í 14.000 eintökum í Danmörku).

Bókin kom út og var dreift í bókaverslanir en ekkert gerðist; fáar endurpantanir og lítill áhugi á bókinni meðal starfsfólks bókabúða. Bókadómar komu í stærstu dagblöðum Noregs, allir mjög jákvæðir en bókin hreyfðist varla þrátt fyrir það. Við uppgjör ári eftir útgáfu reyndust 1.000 bækur hafa selst.

Vonbrigði Hino voru mikil og í nokkur augnablik á meðan sölutölurnar hringsnerust í höfði þeirra Hino-manna kom til greina að pakka saman; leggja drauminn um metsölukrimma frá Japan á hilluna. En svo hristu þeir Hino menn af sér hrollinn og ákváðu að gefa út næstu bók Keigo Higashino: Síðasta flóttaleið engils. Bókin kom út fyrir þremur mánuðum í Noregi og nú virðist allt vera á réttri leið fyrir Hino. Bókin hefur þegar selst í 1700 eintökum (enn er langt í 15.000 eintökin) og næsta bók höfundarins er komin í þýðingu.

Þetta var stutt saga frá forlagslífinu í Noregi.