Kvöldsaga útvarpsins (rás 1) er um þessar mundir skáldsagan Hið fullkomna landslag eftir Rögnu Sigurðardóttur. Á meðan ég hleyp mitt langhlaup eftir Strandvejen á hinum brennheitu, dönsku júnímorgnum hlusta ég á þennan fína lestur höfundarins sem finna má á hlaðvarpsveitu RÚV. Í dag tókst mér að hlusta á það sem nemur þremur upplestrarkvöldum á meðan á hlaupunum stóð.
Ég hef stundum velt fyrir mér stöðu Rögnu Sigurðardóttur í íslensku bókmenntalandslagi og ég varð eiginlega furðu lostinn þegar ég sá að hún hafði gefið út ellefu bækur og ég hef bara lesið tvær, Vetrargulrætur og Þetta rauða það er ástin. Hinar bækurnar hafa meira og minna framhjá mér. Ég var hins vegar óskaplega ánægður með þessar tvær bækur sem ég hef lesið, sérstaklega Vetrargulrætur; sem er framúrskarandi smásagnasafn. Vetrargulrætur er satt að segja ein af þeim eftirminnilegust íslensku bókum sem ég hef lesið síðustu ár. En mér finnst einhvern veginn eins og bókum Rögn sé aldrei sérstaklega haldið á lofti (hvorki af forlagi hennar né af öðrum þeim öflum sem stýra bókmenntaumræðunni á Íslandi). Bækurnar fá sannarlega góða dóma en hvaða bók fær ekki góða dóma á Íslandi? Beri ég Rögnu saman við aðra rithöfunda sem eru að gefa út bækur sínar um þessar mundir finnst mér hún vera ein af þeim sem ætti að vera algjörlega í fremsta flokki. Kannski er Ragna bara ekki nógu dugleg að ýta og pota? Ég veit ekki hvað veldur.
En nú hlusta ég á Hið fullkomna landslag og sá fjórðungur sem ég hef þegar hlustað á lofar góðu. Ég læt tengilinn að hljóðbókinni fljóta með. (hér er hann)