Rebecca Yarros er sex barna móðir. Hún þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem kallast Ehlers-Danlos og hún á erfitt með svefn. Í mörg ár hefur hún vaknað um miðjar nætur og legið andvaka tímunum saman. Á hinum svefnlausu nóttum vandi hún sig á að setjast upp og lesa svokallaðar ástarsögur eða romance á fræðimáli bókaútgefenda. Þegar hermaðurinn, maðurinn hennar var sendur til átakasvæða í Afganistan og Írak tók Rebecca upp á því í einsemd sinna að skrifa á næturnar í stað þess að lesa. Viðfangsefni skrifa hennar var það sem snobbaðir bókabéusar kalla „álfaerótík“ og fitja upp á nefið.

En í dag þann 4. desember árið 2023 á Rebecca tvær söluhæstu bækur New York Times metsölulistans. Og það aðeins tæpum tveimur árum eftir að hún kynnti hugmyndina að nýjum bókaflokki fyrir forleggjara sínum. Árið 2022, eftir að Rebecca hafa lesið bókina „Publishing for Dummies“ fékk hún viðtal við amerískan útgefenda og lagði fyrir hann hugmynd að fimmbóka röð sem átti að vera einskonar blanda af romance og fantasy. Þessi nýi skáldsagnablanda er nú kölluð romantasy og er í gífurlegri uppsveiflu víða um heim. Sögurnar í þessum skáldsagnaflokki einkennast af epískri baráttu milli góðs og ills, flóknum fantasíukenndum söguheimi, höfuðóvinir verða elskendur og síðast en ekki síst er lögð áherslan á sjóðheitar kynlífslýsingar. Oft eru það furðuverur sem stunda kynlífið og þaðan sprettur uppnefnið „álfaerótík“.

Rebeccu til mikillar undrunar varð útgefandinn óður og uppvægur og taldi að þessi bókasería sem Rebecca hafði kynnt fyrir honum yrði algjört hit. Forleggjarinn var til í að leggja allt undir. Fyrsta prentun á fyrstu bók Rebeccu í bókaflokknum,  Fourth Wing, yrði 100.000 eintök og ætlaði forlagið að leggja milljónir í markaðssetningu.

Rebeccu leist bæði vel og illa á fyrirætlanir útgefandans. „Ég fann fyrir gífurlegum þrýstingi. Mér fannst eins og ég hefði líf útgáfufyrirtækisins í lúkunum. Hvað eftir annað var ég að því komin að gefast upp á skrifunum en aftur og aftur fullvissaði útgefandinn mig um að ekkert kæmi í veg fyrir að bókin ætti eftir að ná gífurlegum vinsældum. Þrátt fyrir þetta og alla peningana sem ég vissi að yrðu notaðir í markaðssetningu  kom mér það algerlega á óvart þegar ég sá að bókin læddist inn á metsölulista. Ég var líka gersamlega óviðbúin þessum viðtökum. Ég hafði ekki séð það fyrir að lesendur yrðu algerlega trylltir og krefðust þess að ég skrifað næstu bók í flýti. Það var enginn friður. Ég gat ekki annað en setið við í 12 til 14 tíma á dag og skrifa bók númer tvö í röðinni til að verða við þessum óskum lesenda.“

Áætlanir útgefandans fóru fram úr björtustu vonum. Síðustu sjö mánuði hefur Fourth Wing setið á toppi metsölulista New York Times og hefur selst í milljónaupplagi. Bókin er ekki eingöngu vinsæl  í Bandaríkjunum því bæði í Englandi og Ástralíu er bókin farin að klifra upp metsölulistana á fljúgandi ferð. Þýðingarrétturinn á bókum Rebeccu Yarros er seldur til meira en þrjátíu landa og sitja þýðendur nú sveittir við lyklaborð sín til að snúa ævintýratexta Rebeccu yfir á önnur tungumál.

Þann 7. nóvember sl. þegar Iron Flame, önnur bókin í bókaröðinni kom út í Bandaríkjunum, ætlaði allt um koll að keyra hjá bandarískum bóksölum. Miðnætursala var skipulögð hjá meira en 200 bóksölum og langar raðir mynduðust fyrir framan bókabúðirnar. Bóksalar hafa ekki séð jafn mikinn hita og ákefð hjá lesendum síðan Harry Potter bækurnar voru að koma í sölu.

Fyrir skömmu tryggði Amazon sér sjónvarps- og kvikmyndaréttinn á sögunum Rebeccu Yarros.