Þær fréttir berast hingað alla leið frá Íslandi að breski rithöfundurinn Salman Rushdie hljóti Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár. Þetta er í fjórða sinn sem verðlaunin eru veitt og verðlaunahafarnir hafa verið: Ian McEwan, Anderi Kúrkov og Elif Shafak. Val á verlaunahafa ársins kemur ritnefnd ekkert sérlega á óvart. Sennilega vegna þess að enginn á ritstjórnarskrifstofunni hefur náð að skilja út á hvað verðlaunin ganga í raun og veru.
Samkvæmt stofnskrá verðlaunanna á að veita þau þekktum höfundi sem hefur stuðlað að endurnýjun sagnalistarinnar með verkum sínum. Stórfínt. Ef ég horfi á verðlaunahafa undanfarinna ára má þó halda því fram að megináhersla valnefndarinnar sé pólitísk frekar en bókmenntaleg. Elif Shafek er þekkt baráttukona fyrir mannréttindum og réttindum kvenna í Tyrklandi, Kúrkov fékk verðlaunin þegar Evrópubúar fylgdust hvað best með stríðinu í Úkraínu og höfðu samúð með baráttu Úkraínumanna til að verjast innrás Rússa. Og nú fær táknmynd hins evrópska tjáningarfrelsis, Salman Rushdie verðlaunin.
Allt eru verðlaunahafarnir fyrirtaks rithöfundar – sumir meira framúrskarandi en aðrir – og eiga allt gott skilið en að nákvæmleg þessi fjögur standi í dag fremst í flokki í endurnýjun sagnalistarinnar á ritnefndin kannski örlítið erfitt með að koma auga á. En ætli það sé ekki smekksatriði
Í valnefnd verðlaunanna að þessu sinni voru Egill Helgason yfirmaður Kiljunnar, Stella Soffía Jóhannesdóttir, starfsmaður réttindaskrifstofunnar RLA og framkvæmdastjóri Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík og úkraínski rithöfundurinn Andrei Kúrkov, handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2023.
Forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, mun afhenda verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskólabíói þann 13 september.