Í lok september ætlar breska útgáfufyrirtækið Faber & Faber að gefa út nýja bók eftir Sally Rooney, bók sem margir bíða eftir og áætla breskir bóksalar að þetta verði ein mest selda bók ársins á Bretlandseyjum. Það eru ekki bara breskir bóksalar sem bíða spenntir. Gjörvallur heimurinn stendur á öndinni (grín) og bóksalar um víða veröld ætla að halda upp á útgáfudag Intermezzo, eftir Sally Rooney. Sennilega verður veislan þó veglegust í breska konungsdæminu. Forlagið Faber hefur þegar stofnað til samstarfs við meira en 40 bókabúðir til að fagna útgáfunni. Eru þessi bókabúðahátíðarhöld hluti af stærstu markaðsherferð fyrirtækisins frá upphafi. Hvorki meira né minna.
Á Íslandi er það útgáfufyrirtækið Forlagið sem hefur tryggt sér útgáfuréttinn á þessari margumtöluðu bók. Ekki er vitað hvaða brögðum Forlagið ætlar að beita til að vekja athygli íslenskra lesenda á bókinni. Markaðsáætlanir Forlagsins enn ekki lekið inn á ritstjórnarskrifstofu Kaktussins.
Bókabúðir um allt konungdæmið ætla að opna bókabúðir sínar snemma á útgáfudaginn þann 24. september og jafnframt bjóða upp á margvíslega dagskrá í búðum sínum. Boðið verður upp á veitingar og uppákomur á búðargólfum til að halda upp á það að fjórðu skáldsögu Sally Rooney hafi verið dreift til sölustaða. Meira að segja hefur stærsta bóksölukeðja Bretlands, Waterstones, boðað mikil veisluhöld í öllum búðum keðjunnar.
Kaktusinn býður spenntur eftir að sjá markaðsherferð Forlagsins á Íslandi eða réttara sagt Kaktusinn býður spenntur eftir að sjá hvort Forlagið leggi út í miklar herferð á Íslandi til að selja nýja skáldsögu eftir sinn nýfengna rithöfund. Þetta er allt brjálæðislega spennandi.