Einu sinni að þegar Thomas Mann dvaldi á Grand Hotel des Bains í Feneyjum  fékk hann landa sinn í heimsókn. Thomas Mann var fastagestur á hótelinu og skrifaði þar bækur sínar (það er almennilegur stíll yfir því). Ég held að gesturinn hafi heitið Oscar Bie. Oscar þessi var sagnfræðingur og mikill bókmenntaáhugamaður og varð svo heillaður af samtali sínu við rithöfundinn í setustofu hótelsins að þegar hann sneri aftur til Þýskalands keypti hann heilsíðuauglýsingu í desemberhefti Neuer Rundschau.

Auglýsingin var handskrifuð af sjálfum herra Bie og þar vakti hann athygli lesenda á því að Thomas Mann væri fljótlega tilbúinn með nýja skáldsögu og skyldi hún heita Lærlingur töframannsins. Margir tóku eftir þessari auglýsingu og varð bæði auglýsingin og væntanleg bók Manns samtalsefni fólks á götum úti. Var tilhlökkun í þjóðinni að fá nýja skáldsögu frá stórskáldinu. Vandinn var bara sá að Oscar hafði ekki skilið titil bókarinnar rétt. Heiti bókarinnar sem Thomas Mann vann að var Töfrafjallið.