Það var ekki ætlun ritnefndar Kaktussins að halda áfram að skrifa um Hin íslensku bókmenntaverðlaun eins og þau heita. Ritnefndin taldi það ekki hafa neitt upp á sig – sem er auðvitað alveg rétt ályktað – en Kaktusinn stenst samt ekki mátið. Í vikunni bárust nefnilega þau tíðindi til eyrna ritnefndar að Félag íslenskra bókaútgefenda hafi boðað til stjórnarfundar í vikunni. Kaktusinn hefur ekki hugmynd um hver dagskrá fundarins er en í hinum hógværa huga ímyndar ritnefndin sér að nú skuli ræða breytingar á formi og hugsun bókmenntaverðlaunanna. Hingað til hefur stjórnin þagað þunnu hljóði og ekki brugðist opinberlega við hinum háværu óánægjuröddum sem lengi hafa heyrst  um  verðlaunin. Það er svo sem ekkert nýtt að Hin íslensku bókmenntaverðlaun skeki stjórn FÍBÚT. Lítil eining er innan FÍBÚT um verðlaunin og sumir stjórnarmeðlimir hafa í áranna rás lagt til að félagið hætti að standa fyrir verðlaununum enda er stjórnin margsamansett og fæstir stjórnarmenn sjá hag sinn í því að veita þessi verðlaun.

Einnig berast þau tíðindi frá öðrum bæjarhluta Reykjavíkur að sú hugmynd hafi verið viðruð, rædd  og fengið góðar undirtektir að stofna skuli ný  bókmenntaverðlaun, „mun veglegri og  faglegri“ og fá „sterka bakhjarla til að styðja  við verðlaunin.“

Að öðru. Smám saman birta íslensku forlögin útgáfulista sína fyrir haustið. Hefur það vakið nokkra athygli og komið á óvart að Sigríður Hagalín (DEUS), Auður Ava Ólafsdóttir (DJ BAMBI) og Vigdís Grímsdóttir (ÆVINTÝRIÐ)  gefi út skáldverk í ár hjá Benedikt; ekki að bækurnar komi út hjá útgáfufélaginu Benedikt heldur að Sigríður Hagalín og Auður Ava leggi fram ný skáldverk í ár, því venjulega líða að minnsta kosti tvö ár milli bóka hjá höfundunum. Um það bil áratugur er síðan Vígdís Grímsdóttir gaf síðast út skáldsögu.