Síðdegis þann 23. apríl 1930, á 28 afmælisdegi sínum, sat Halldór Laxness og drakk kaffi með Ingu Laxness. Þau skipulögðu væntanlegt brúðkaup þeirra sem var haldið rúmri viku síðar eða þann 1. maí. Á sömu stundu sat F. Scott Fitzgerald í stofu sinni í Rue Pergolas, í 16. hverfi Parísaraborgar og drakk úr ginflösku. Hann var niðurdreginn. Fyrr um morguninn hafði honum tekist að fá pláss fyrir konu sína Zeldu á geðsjúkrahúsinu Malmaison í París. Hjónin Scott Fitzgerald og Zelda Fitzgerald höfðu fyrr verið talin hið gullna par samkvæmislífsins en geysileg drykkja þeirra var þarna fyrir löngu orðin algjörlega taumlaus og Zelda orðin ein taugahrúga.
Innlögnin hafði ekki gengið hljóðalaust fyrir sig. Zelda æpti og sló frá sér þegar Scott Fitzgerald leiddi hana inn sjúkraganginn til móts við hjúkrunarfólkið. „Ég hef ekki tíma til að vera hérna,“ öskraði hún. „Ég þarf að mæta í balletttíma.“
Á meðan Scott Fitzgerald tæmdi fyrstu ginflöskuna þetta síðdegi (hann átti eftir að tæma aðra ginflösku) skrifaði hann vini sínum Ernest Hemingway og kvartaði undan því að ekkert gengi honum í haginn, hann var blankur, vonlaus og átti erfitt með að einbeita sér að skrifum. Fimm árum fyrr hafði hann gefið út bók sína The Great Gatsby (Hinn mikli Gatsby sem kom út í íslenskri þýðingu Atla Magnússonar árið 1987) og átti að fylgja eftir þeim miklu vinsældum sem Scott Fitzgerald hafi aflað sér með útgáfu bókanna This Side of Paradise og The Beautiful and the Damned. Sala The Great Gatsby bókarinnar var hins vegar mjög dræm þrátt fyrir að fá ágæta dóma. Einungis 20.000 seldust fyrsta árið eftir útgáfu. Scott Fitzgerald var því orðinn staurblankur og örvæntingarfullur. Ekkert gekk að skrifa nýja skáldsögu því öll gindrykkjan var farin að taka frá honum bæði vit og krafta.
Næstu ár reyndi Scott Fitzgerald hvað eftir annað að hætta að drekka áfengi. Honum tókst að ljúka við að skrifa skáldsöguna Tender is the Night árið 1934 – níu árum eftir útgáfuna á The Great Gatsby – en það var ekki fyrr en árið 1940 sem barátta hans við Bakkus virtist loks ætla að takast en einmitt það sama ár fékk hann hjartaáfall og dó 44 ára að aldri.