Ein besta kvikmynd sem ég sá árið 2023 var Jojo Rabbit eftir Nýsjálendinginn Taika Waititi sem einnig var leikstjóri myndarinnar. Jojo Rabbit var að vísu framleidd árið 2019 þannig að í raun var myndin komin nokkuð  til ára sinna þegar ég sá hana. Í morgun þegar ég  las að leikstjórinn Taika Waititi hefði tekið að sér að leikstýra kvikmynd byggða á bók Kazuo Ishiguro, Klara and the Sun gat ég ekki annað en látið mig hlakka til. Ef ég man rétt fjallar Klara og sólin um stúlkuna, eða gervigreindarknúna vélmennið, Klöru sem hefur það hlutverk í „lífinu“ að forða unglingum frá því að verða einmana. En í sögu Ishiguro fer Klara út fyrir rammann og tekur  að sér að bjarga heilli fjölskyldu frá mikilli hjartasorg.

Ég áttaði mig á því á meðan ég var að skrifa þessi orð – mér til nokkurrar furðu  – að síðustu skáldsögur Ishiguro, The Buried Giant og Klara and the Sun eru ekki þýddar á íslensku. Ég er steinhissa. Bjartur hefur gefið út flestar af bókum höfundarins en virðist ekki sjá efnahagslegar forsendur í að láta þýða þessar tvær nýjustu bækur höfundarins. Hvað um menningarlegar og bókmenntalegar forsendur? Það liggur við að maður leggi í það alvitlausa framtak að stofna forlag til að koma þessum meistaraverkum út á íslensku.

Á sama tíma og framleiðsla á kvikmynd Ishiguro og Waititi um gervigreindarvélmennið Klöru er um það bil að hefjast birtist auglýsing frá kvikmyndahúsinu Prince Charles í London um frumsýningu á fyrstu kvikmynd sem gerð er eftir handriti gervigreindarforritsins ChatGPT 4.0. Myndin heitir Síðasti handritshöfundurinn (e. The Last Screenwriter). Samkvæmt auglýsingunni átti að frumsýna myndina sl. sunnudag. Að vísu varð ekkert úr fyrirhugaðri frumsýningu vegna mótmæla kvikmyndaunnenda. Í yfirlýsingu kvikmyndahússins í tengslum við aflýsinguna segir meðal annars. „Mótmælin síðasta sólarhring sýnir að margir af föstum gestum kvikmyndahússins okkar hafa miklar áhyggjur af notkun gervigreindar í stað lifandi handritshöfunda. Viðbrögðin endurspegla um leið áhyggjur margra sem starfa við kvikmyndaiðnaðinn. Frumsýningu er því frestað um óákveðinn tíma.“