Nýr dagur og nú er ritnefnd í Danmörku. Meira flakkið. En það tókst að klára bók Braga Ólafssonar, Innanríkið – Alexíus. Hægt er að segja, án alls hiks, að bókin sé sannarlega ánægjuleg lesning. Gaman er að sjá þessa nýju hlið á Braga. Við lesturinn á Innanríkinu kviknaði sú sjaldgæfa og sú góða lestrarnautn; lesið langt fram á nótt og mikil tilhlökkun að snúa aftur til lestursins þegar bókin var lögð til hliðar (í hreinni neyð). Ritnefndin gleypti bókina í sig. Algjörlega hægt að mæla með þessari sérkennilegu bók Braga, Innanríkið. Þetta er nýstárleg ævisaga þar sem ekki er endilega staldrað við stóru atburði lífsins heldur frekar hrasað um hversdagsleg og smávægileg æviatriði sem þó virðast mara í hálfu kafi gleymskunnar.
Ritnefnd skilst að Bragi ætli að halda áfram að gera skil á lífi sínu á þennan hátt í næstu bókum og það er gaman. Það er svo hressandi að með þessari bók gefur Bragi algjöran skít í markaðinn, höfundi er alveg sama þótt engum komi við það sem stendur í bókinni. Atburðir lenda einhvern veginn af tilviljun inn í frásögnina (sbr. löng og furðuleg ræða einhvers manns sem Bragi tók upp á segulband (eða það segir hann). Eða tilviljunarkenndur fundur með amerískri blaðakonu, uppákoma á skólatónleikum, aksturslag dr. Gunnlaugs Þórðarsonar …. Nei, fyrir svona ritnefnd eins og ritnefnd Kaktussins er ekki hægt óska sér skemmtilegri bók.
Nú þegar lestur Innanríkisins er lokið tekur önnur íslensk bók við: Sporðdrekar Dags Hjartarsonar. Ritnefnd hefur þegar lesið 123 blaðsíður og stefnir á að klára þessa fínu bók á fimmtudag.