Brottfarardagur. Ritnefndin flýgur yfir hafið í dag og lendir væntanlega í kvöld – ef Guð lofar – á Kastrup-flugvelli í Danmörku. Af því tilefni var ritnefndarfundur haldinn á 12 tónum í gær og var rithöfundurinn Jón Kalman sérstakur gestur fundarins og sagði hann frá óendanlega langri kynningar- og upplestrarferð sinni til Bandaríkjanna og Kanada. Sjálfur er Jón Kalman með skáldsögu í jólabókaflóðinu, Himintungl yfir heimsins ystu brún, og á hann góða möguleika á að verða einn af sigurvegurum bókavertíðarinnar eins og maður kallar það. Bókin er söguleg skáldsaga og eykur það sigurmöguleika hans.
Eftir ritnefndarfundinn notfærði ritnefnd sér bæjarferðina og keypti bók Braga Ólafssonar, Innanríkið, sem verður ferðanestið í fluginu til Danmerkur. Ef til vill verður Bragi sigurvegari jólabókaflóðsins eða Guðrún Eva með sína skáldævisögu.
Ritnefnd spáir þó að Arnaldur Indriðason verði söluhæstur með sín Ferðalok. Arnaldur nýtur mikillar velvildar og birtist þjóðinni ekki sem athyglissjúkur listamaður heldur hógvær vinnuhestur sem skilar sínu þann 1. nóvember ár hvert.