Ritnefnd sem sat á fundi á kaffistaðnum Harvest í morgun fékk þær fréttir að skip Samskipa, Skaftafell, hafi lagst við bryggju í Sundahöfn í gær. Skipið hafði þá fylgt fyrirfram ákveðinni siglingarleið alla leið frá Cuxhaven og til Reykjavíkur. Siglingin mun hafa tekið sex daga enda með viðkomu bæði í Gautaborg og Árósum. Nú eru ekki lengur sagðar skipafréttir í útvarpinu og því verður ritnefnd  að treysta því sem menn, fávísir um skipaferðir, segja  og treysta því að skipið hafi komið farmi sínum í höfn í gær.

Það er ekki að ástæðulausu að ritnefnd fylgist með ferðum Skaftafells því um borð er að minnsta kosti þrjú vörubretti hlaðin stöflum af nýrri bók með titilinn BÓK VIKUNNAR. Nú mega lesendur Kaktussins geta sér til um hver sé höfundur þessarar bókar. Svar sendist á netfangið snar@kaktusinn.is. Verðlaun fyrir rétt svar: Ferð til Parísar fyrir tvo, milljónir í farareyri og eitt eintak af BÓK VIKUNNAR. Dregið verður úr réttum svörum. Yo.