Það hefur verið skrásett að skáldkonan franska Simone de Beauvoir og tilvistarheimspekingurinn franski Jean-Paul Sartre eyddu fyrstu nótt sinni saman þann 14. október árið 1929. Það var í íbúð á fimmtu hæð á Denfert-Rochereau götu í 14. hverfi Parísarborgar (ekki langt frá Lúxemborgargarðinum). Eins undarlegt og það kann að virðast voru elskendurnir sammála um að hið æpandi appelsínugula veggfóður sem hafði verið klastrað á veggi ástarhreiðursins væri það sem þau myndu best frá þessari sögulegu nóttu.
Minningin um sögulega nótt í appelsínugulu ljósi