Í gær bárust þrjár spurningar til ritstjórnar Kaktussins í tilefni skrifa gærdagsins um stuttar bækur: 1) „Ertu að stríða eða?“ Svona hljóðaði stuttur tölvupóstur og var vísað til þess að bækur megi helst ekki vera meira en 300 blaðsíður. Svar ritstjórnar var einfaldlega „nei“.
Og skömmu síðar kom annar tölvupóstur frá öðrum aðila sem bar upp tvær spurningar: Fyrri spurningin hljóðaði svona: 2) „Er 6. september 2023 virkilega upphafsdagur jólabókavertíðar 2023?“ Ritstjórnin átti auðvitað ekkert svar við þessari góðu spurningu.
Síðari spurning: „Gæti verið að bók Ármanns Jakobssonar, Prestssetrið, sem kom út í sumar marki upphaf jólavertíðar?“ Þessu gat ritstjórnin heldur ekki svarað. En í leit sinni að útgáfudegi Prestsseturs Ármanns, sem er glæpasaga, (ritstjórnin fann bara ekkert um bókina annað en að Bjartur hefði gefið hana út og að Eymundsson og Forlagsbúðin selji bókina) rann upp fyrir ritstjórn að engir ritdómar finnast um bókina, engin umfjöllun eða viðtöl eru í kringum bókina, Smartland hefur ekki mætt með myndavél á útgáfuhóf. Það er engu líkara en að bókin hafi flogið eins og íranskur dróni yfir bókmenntalandslagið, gersamlega óséð.
Ármann heldur úti bloggsíðunni bókmenntir og listir og við lestur þeirrar síðu hvarflaði að ritstjórn að Ármann hafi fundið upp eitthvað töfraefni, sem hann annað hvort drekkur eða sprautar sig með, því sólarhringur hans virðist að minnsta kosti tvöfalt lengri en annarra miðað við afköst hans (hann gleypir bækur og kvikmyndir á örstuttri stund og skrifar samtímis gífurlegt magn texta) og eitthvað hlýtur maðurinn að nota til að hafa slíkt límminni að hann geti endursagt efni bóka sem hann las fyrir tuttugu árum.
En það sem vakti þó mesta athygli ritstjórnar þegar leitin að viðbrögðum við Prestssetrinu fór fram var þessi ágæta setning sem hægt er að finna á áðurnefndri bloggsíðu Ármanns:
„Sennilega þurfti Emily Dickinson aldrei að hafa áhyggjur af því að einhverjum fyndist hún ætti að kunna að setja saman rúm. Hún þurfti ekki heldur að hafa áhyggjur af flutningum því að hún dó í sama húsi og hún fæddist. Eða af því að enginn keypti bækurnar hennar því að hún gaf aldrei út bók í lifanda lífi.“
Og einmitt þessi síðasta setning vakti ritstjórn til umhugsunar um hvort Ármann hafi heldur ekki áhyggjur af sölu bóka sinna? Prestssetrið virðist vera gefin út fyrir utan sölutíma bóka. Það er að minnsta kosti engin sjáanleg merki um að sumar sé hentugur tími til að senda bækur á markað.