Þegar Pablo Picasso var 48 ára leigði hann íbúð í Rue de Liége í 9. hverfi Parísarborgar. Íbúðina notað hann til að mála unga ástkonu sína, Marie-Thérése Walter, fyrst liggjandi, næst standandi og svo sitjandi. Og svo málaði hann hana aftur, fyrst liggjandi, næst standandi og svo liggjandi. Leigusamningurinn var leynilegur og enginn mátti vita af þessu ástarhreiðri listamannsins. Að loknu dagsverki kyssti hann ástkonu sína í kveðjuskyni og flýtti sér heim til konu sinnar, hinnar rússnesku ballerínu Olgu Khokhlovu og sonarins, átta ára, Paulo. Í nokkra mánuði tókst Picasso að halda ástarævintýri sínu leyndu en að endingu voru það málverkin sem koma upp um hann.