Íslensk útgáfufyrirtæki eru enn treg við að nota gervigreind til að ritstýra, hanna eða myndskreyta bækur en svo er ekki í Bandaríkjunum þar er notkun gervigreindar í hröðum vexti, svo hröðum að óttavaxinn kvíði er farinn að herja á fólk innan bransans.

Bæði tímaritið The Bookseller og dagblaðið Politiken hafa nýlega vakið athygli á þessari nýju þróun í útgáfuheiminum með greinaskrifum sínum.

Fyrirtækið Spines, sem var stofnað árið 2021, hefur nú gefið út sínar fyrstu bækur með aðstoð gervigreindarforrita sem geta bæði prófarkalesið, þýtt, hannað bókarkápur og séð um prentun, markaðssetningu og dreifingu bóka. Fyrir þessa þjónustu fer forlagið fram á 5.000 dollara greiðslu af öllum sem senda handrit til þeirra.

Og áhuginn er mikill. Árið 2023 voru gefnir út  2,6 milljónir sjálfsútgáfu titlar í Bandaríkjunum. Á sama tíma fækkaði titlum sem gefnir voru út með hefðbundnum hætti og voru þeir 563.000 á sama tíma.

Með gervigreind segist Spines, sem er í raun frekar tölvufyrirtæki en forlag, geta stytt útgáfuferlið úr sex til átján mánuðum niður í tvær til þrjár vikur. Fyrirtækið áætlar að gefa út 8.000 titla á árinu 2025.

The Bookseller, sem er breskt fagtímarit innan bókabransans, vekur athygli á því að sjálfvirkni í útgáfuferlum geti gert prófarkalesara, bókahönnuði, þýðendur og ritstjóra atvinnulausa, en Yehuda Niv, forstjóri og stofnandi fyrirtækisins segir svo ekki vera:  „Við erum ekki að drepa sköpunargleði mannsandans, við þörfnumst enn skapandi fólks. Við einbeitum okkur að einfalda útgáfuferli bóka sem eru skrifaðar af fólki sem leitar eftir árangursríkustu og nýjustu leiðum til að fá handrit sitt gefið út og dreift um allan heim.“

Spines er aðeins eitt af mörgum nýjum fyrirtækjum í bókaútgáfu. Bytedance, fyrirtækið á bak við TikTok,  ætlar fljótlega að hefja útgáfu bóka undir nafninu 8th Note, og Microsoft hefur nýlega stofanað 8080 Books, sem ætlar að  nota nýja tækni til að „flýta og lýðræðisvæða“ bókaútgáfu. Microsoft hefur fengið aðgang  að mörg þúsund fræðibókum í gegnum HarperCollins til að þjálfa gervigreindartækni fyrirtækisins.

Það er ekki bara í Bandaríkjunum sem notkun  gervigreindartækninnar er vaxandi í bókaútgáfu. Flest útgáfufyrirtæki í Evrópu fylgist með þróuninni og eru að taka sín fyrstu skref.  Í haust gaf Gyldendal út nokkrar skáldsögur sem hafa verið þýddar með aðstoð gervigreindarforrits frá fyrirtækinu Nuanxed. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í að þróa gervigreindarforrit til að þýða bækur en lætur síðan ritstjóra af holdi og blóði yfirfara textann.

Samkvæmt upplýsingum sem Nuanxed  hefur veitt  Publishers’ Weekly Nuanxed  þýtt 800 bækur frá árinu 2021 eftir 150 höfunda á 69 mismunandi tungumál.

Væntanlegt er á markað frá sama fyrirtæki forrit sem getur hermt eftir rödd hvaða rithöfundar sem er, þannig að innlestur hljóðbóka með gervirödd höfundar eða gervirödd leikara verður í boði fyrir þá sem kaupa gervigreindarþjónustu Nuanxed. 

Það er ekki að undra að vaxandi örvænting sæki á rithöfunda, þýðendur, starfsfólk bókabransans og jafnvel leikara.