Rétt í þessu steig ritari Sænsku Nóbelsakaedemíurnar fram og tilkynnti hvaða rithöfundur hlyti bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2024. Niðurstaða Nóbelsnefndarinnar kemur á óvart. Það er suður-kóreanski rithöfundurinn Han Kang  sem hlýtur  verðlaunin í ár. Akademían tilgreinir að  „hinn innilegi og ljóðræni texti hennar sem tekur á sögulegum áföllum og birtir hverfulleika mannlegrar tilveru,“ í röksemdum sínum fyrir  að veita Han Kang verðlaunin í ár. Hang Kang er fædd árið 1970 og er þekktust fyrir bókina Grænmetisætan sem kom út í heimalandi hennar árið 2007, en bókin hlaut Man Booker-verðlaunin árið 2016.

Bjartur gaf út Grænmetisætuna árið 2017 og sama ár kom Han Kang á Bókmenntahátíðina í Reykjavík. Grænmetisætan er súrrealísk saga sem fjallar um þunglynda húsmóður sem kemur fjölskyldu sinni í opna skjöldu með því að hætta að borða kjöt; síðar ákveður hún alveg að hætta að neyta matar því hún heldur að hún geti nærst á sólarljósinu einu saman.