Mjög vel virðist hafa tekist að kynna og afhenda hin alþjóðlegu bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í vikunni sem leið. Fjölmiðlar veittu verðlaununum og verðlaunahöfundinum, Salman Rushdie, töluverða athygli og sjálf verðlaunaathöfnin þótti takast vel. Samtal Halldórs Guðmundssonar og Höllu Oddnýjar Magnúsdóttir við rithöfundinn sem var í miklu stuði þótti sérlega vel heppnað. Bók Rushdies Hnífur sem kom út þann 6. september hefur líka fengið verðskuldaða athygli þótt bókin verði kannski ekki metsölubók þessi jólin.

Í liðinni viku bárust einnig fréttir úr dálítið annarri deild bókmenntanna sem vöktu athygli ritnefndar (sem hefur ekki getað sinnt Kaktusnum í þrjá heila daga vegna anna við að taka á móti gestum í borg ástarinnar). En þau tíðindi bárust frá breska útgáfurisanum Pan að sl. miðvikudag hafi tekist að ganga frá 20 bóka samningi við rithöfundinn Danielle Steel. En samkvæmt samningnum, sem nú er í gildi milli höfundarins og forlagsins, skilar Danielle sjö nýjum skáldsögum á ári til forlagsins en hún er nú orðin 77 ára gömul. Svo skemmtilega vill til að Danielle er einmitt stödd í París þessa dagana þar sem hún á íbúð í 7. arr. ekki langt frá fundarstað ritnefndar.

Það er langt síðan ný bók eftir Danielle hefur verið gefin út á íslensku (2005) en um árabil var gefin út að minnsta kosti ein bók eftir Danielle Steel sem hefur skrifað meira en 200 bækur á ferlinum; skáldsögur, ljóð, barnabækur og „non-fiction“. Þetta eru gífurleg afköst hjá höfundinum, sem skrifar allar sínar bækur á Olympia SG1 ritvél. Lesendahópur hennar er stór og tryggur og seljast bækur hennar í milljónaupplagi. Fyrsta prentupplag er aldrei minna en 1.000.000 eintaka. Samtals hefur Danielle Steel selt meira en þúsundmilljón bækur. Milljarður bóka. Holy moly.

En hvað gerir þennan rithöfund jafn vinsælan og raun ber vitni? Sjálf lifir hún skrautlegu lífi með að minnsta kosti 5 misheppnuð hjónabönd að baki  og er kölluð „bad-ass bosslady“.  Það selur. Hún velur oft að skrifa um ríkt og frægt fólk sem lendir í hremmingum en tekst að yfirvinna vandræði sín með dugnaði og seiglu. Það selur. Sjálf hefur Danielle þessa skýringar: „Ég skrifa um viðfangsefni sem okkur öllum eru mikilvæg og við öll höfum áhyggjur af. Þetta eru atvik sem vekja gleði eða sorgir, vonir og vonbrigði, ótta og allt það sem við þurfum að glíma við í lífinu og í samböndum okkar við annað fólk. Ég skrifa ekki um það sem gerir fólk sorgmætt ég vil fjalla um það sem vekur von, gleði og hlátur,“ sagði Danielle í tilefni af nýja tuttugubókasamningnum.

Á skrifstofunni í París hefur hún hengt upp skilti þar sem á stendur: Kraftaverk gerast ekki. Aginn gildir.