TikTok, kínverski samfélagsmiðillinn sem býður app-notendum sínum upp á mikið úrval stuttra myndbanda sem ætluð eru til að skemmta og upplýsa, er í þann mund að bylta bóksölu í heiminum.
Síðasta sumar (sumarið 2023) gerðist það að maður að nafni Kohn Glay rakst á þunna sjálfshjálparbók, The Shadow Work Journal. Bókin á að hjálpa lesendum sínum að uppgötva hulda þætti í undirmeðvitundinni. Þetta fannst Kohn Glay athyglisvert og fékk eintak af bókinni. Skömmu síðar birtist myndband sem Kohn póstaði á TikTok þar sem hann mælir eindregið með sjálfsháparbókinni The Shadow Work Journal. „Ef þú vilt komast í snertingu við undirmeðvitundina neyðist þú bara til að kaupa þessa bók,“ segir hinn skeggjaði Kohn og hefur snúið derhúfunni sinni öfugt. Og hvað gerist. Notendum TikTok þótti myndband Kohn Glay svo skemmtilegt og sannfærandi að það hefur verið spilað 58 milljón sinnum og þeir sem horfðu á myndband Kohns keyptu 40.000 eintök af bókinni The Shadow Work Journal. Sjálfur kom Kohn ekki slyppur og snauður frá kynningarstarfi sínu því hann fékk meira en 150.000 dollara í sölulaun (and still counting, eins og sagt er) fyrir öll þessi seldu eintök.
Og hér kemur hið byltingarkennda. Hin 25 ára gamla Keila Shaheen frá Texas er höfundur The Shadow Work Journal og gaf hún sjálf út bókina árið 2021. Salan gekk í fyrstu treglega. Eitt og eitt eintak mallaði út. Síðla árs 2022 ákvað TikTok að búa til eigin vefverslun fyrir þá hluti sem kynntir eru á TikTok-miðlinum og hrundi af stað nýjung þar sem svokölluðum áhrifavöldum er gert kleift að búa til eigin myndbönd um vörur sem eru til sölu í vefverslun TikTok og fá sölulaun af seldum vörum sem þau kynna. Um leið og Keila Shaheen byrjaða að selja bókina sína um skuggaverur sálarinnar í TikTok vefbúðinni streymdu inn beiðnir frá áhrifavöldum um kynningareintök frá höfundinum gegn því að búa til kynningarmyndbönd um bókina. Einn þessara áhrifavalda var sjálfur Kohn Glay.
Og nú fóru söluhjól bókarinnar að snúast. Áhrifavaldarnir, ekki bara Kohn Glay, fóru hamförum í kynningu bókarinnar og fengu að launum 15% af forlagsverði hverrar seldrar bókar. Nú hefur bókin hennar Shaheen seldist í meira en 1.000.000 eintökum þar af 700.000 í gegnum TikTok verslunina.
Maður þarf kannski ekki að vera mikill spekingur til að spá því að ekki verði þess langt að bíða þar til að facebook, instagram, X, YouTube opni sínar eigin vefverslanir í anda TikTok. Og hvaða áhrif hefur það á bóksölu framtíðarinnar? Hvers konar rithöfundar koma best út úr þessari markaðsþróun, hvað bókmenntategundir verða ofan á í þessu nýja umhverfi? Hvað verður um bóksalana? Hvað verður um hin hefðbundnu forlög? Ég hef mínar hugmyndir en ég veit samt ekkert.
En að öðru. Í morgun hlustaði ég á menningarþáttinn Lestin á Rás 1. Á árum áður hlustaði ég á þennan þátt svo að segja daglega. En það hef ég ekki gert lengi. Eftir hlustun á þátt gærdagsins skil ég vel af hverju ég nenni ekki lengur að kveikja á Lestinni. Á hlaupum mínum eftir Strandvejen með Lestina í eyrunum varð mér hugsað til hinna fleygu orða þar sem meðalmennskan er dásömuð: „niður með fjöllin, upp með dalina.“ Oft finnst mér satt að segja standardinn á hinum svokölluðu sérfræðingum sem eru fengnir til að tala um þau málefni sem eru til umfjöllunar ekki nógu hár og um þetta hugsa ég oft þegar ég hlusta á íslenskt útvarp, ekki bara Lestina. Hvar er afburðafólkið? spyr ég ef maður má spyrja slíkra spurninga. Hví er eilíft verið draga alla þessa meðalmennsku upp á dekk?