Paul Auster dó þann 30. apríl í ár og nú hefur ekkja hans, Siri Hustvedt, tilkynnt að hún sé byrjuð að skrifa minningabók um hann.

„Ég byrjaði að skrifa minningabók um hann og um mig eða um okkur eftir jarðarförina í kirkjugarðinum við Green Wood í Brooklyn. Ég kalla bókina núna Ghost Stories. Það er ekki vegna þess að ég ætlaði mér að skrifa bókina heldur fann ég bara innilega þörf til að skrifa þessa minningabók. Ég er örugglega ekki ein um að finna fyrir sterkri nauðsyn að skrifa um þann sem maður elskar. Ég hef þegar sett orð á 120 blaðsíður og ef allt gengur að óskum held ég að bókin komi út á næsta ári en því get ég ekki lofað. Ég vona en ég lofa engu. Í raun og veru hef ég ekki hugmynd um hvenær bókin verður tilbúin.“