Ritnefnd hafði upp á tveimur „öppum“ sem eiga að gera líf lestrarhestsins auðveldara, lesturinn hraðari og lesreynsluna skemmtilegri. Þetta er krafa nútímans. Auðvelt, hratt og skemmtilegt. Appið Magibooks nýtir sér gervigreind til að einfalda klassísk bókmenntaverk eins og til dæmis Ulysses, (James Joyce) og Svo mælti Zaraþústra (Nietzche). Lesandinn þarf ekki að plægja sig í gegnum langar og erfiðar bækur því Magibooks sér um að velja, stytta og endursegja bækurnar. Hins vegar er „appið“ Rebind sem er rafeindavæddur bókaklúbbur. Í þessu appi er gervigreindin nýtt til að lesendur geti rætt við tölvu (sem hefur m.a. rödd Margretar Atwood) um þær bækur sem hafa verið lesnar og það „svarar öllum þeim spurningum sem lesandi kynni að hafa.“
Auðvelt, hratt og skemmtilegt.